Framkvæmdanefnd
Þjórsársveitarfélaganna vinnur að uppbyggingu atvinnutækifæra í orkufrekum
iðnaði innan sveitarfélaganna. Sveitarstjórnunum er í mun að orka Þjórsár
verði nýtt við uppsprettu til atvinnuuppbyggingar innan
Þjórsársveitarfélaganna.
Framkvæmdanefnd er tilbúin að taka vel á móti fjárfestum í orkufrekum
iðnaði og leggur áherslu á sveigjanleika í samstarfi. Sveitarstjórnirnar
standa einhuga að baki Framkvæmdanefndinni í viðleitni sinni að kynna
Þjórsársveitir sem ákjósanlegan valkost fyrir orkufrekan iðnað.
Upplýsingariti þessu er ætlað að kynna kosti Þjórsársvæðisins og auka
sýnileika þess. Framkvæmdanefndin býður fjárfesta velkomna til viðræðna.