19. desember 2008.
Fundað með fjármálaráðherra

Framkvæmdanefnd hélt fundar- og kynningarvinnu sinni áfram í vikunni og fundaði nú með Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Vel var tekið á móti nefndarmönnum í fjármálaráðuneytinu síðastliðinn miðvikudag og sendir Framkvæmdanefnd fjármálaráðherra bestu þakkir fyrir að gefa sér tíma til að hitta sig þrátt fyrir mikið annríki.

Ráðherra voru kynnt markmið Framkvæmdanefndar um nýtingu orku Þjórsár til atvinnuuppbyggingar í Þjórsársveitum auk þess sem farið var yfir ályktun SASS. Ráðherra tók máli nefndarinnar vel og sýndi sjónarmiðum Þjórsársveita skilning. Sem fyrsti þingmaður í Suðurkjördæmi væri málið honum bæði nærstætt og mikilvægt. Ráðherra áréttaði þó að efnahagsumhverfið á Íslandi hefði gjörbreyst síðustu mánuði.

Framkvæmdanefnd leggur áherslu í starfi sínu að horft sé til framtíðar með nýtingu Þjórsár og að skammtímahagsmunir ráði ekki för. Ef af virkjunum verður sé mikilvægt að tillit sé tekið til þeirra fórna sem þær hefðu í för með sér fyrir íbúa og náttúru Þjórsársvæðisins.

Ráðherra og framkvæmdanefnd ræddu vítt um nauðsyn þess að málin yrðu leyst á máta sem yrði sem mest sátt um. Framkvæmdanefnd fann fyrir miklum vilja og stuðning frá fjármálaráðherra. Senda Þjórsársveitir Árna og starfsfólki hans bestu jóla- og nýársóskir.

Á nýju ári heldur vinna Framkvæmdanefndar áfram af fullum krafti.