27. janúar 2009. Heimsókn á Reykjanes
Á myndinni eru Árni Sigfússon, stjórnarformaður HS Veitna og bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku og forstjóri Geysir Green Energy, Júlíus Jón Jónsson forstjóri HS Orku & Veitna, ásamt Framkvæmdanefnd.Framkvæmdanefnd hefur ekki látið deigann síga á nýju ári og lá nú leiðin í Reykjanesbæ til fundar við fulltrúa Hitaveitu Suðurnesja og Reykjanesbæjar. Var tilgangurinn að heyra beint frá heimamönnum um þá vinnu sem að baki liggur varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu ásamt því að kynna starf og markmið Þjórsársveita.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá Reykjanesmönnum á síðustu árum og hefur tekist vel að eiga við það tómarúm sem skapaðist í atvinnumálum við brottför varnarliðsins. Fengu gestir ágætt yfirlit yfir það mikla starf sem unnið hefur verið og var það samróma álit Framkvæmdanefndar að Þjórsársveitir mættu taka sér ýmislegt til fyrirmyndar af Reykjanesinu.
Sammæltust aðilar um að full ástæða sé til að slíkt samráð og skoðanaskipti héldu áfram. Hugmyndir og áreiðni Reykjanesmanna gætu orðið Þjórsársveitum til stuðnings í ýmsum þeim verkefnum sem fram undan eru.