10. nóvember 2008.
Kynningarfundur Þjórsársveita haldinn í Árnesi
 

Forstjóri Landsvirkjunar heldur erindi um stöðu virkjanaundirbúnings

 

Þjórsársveitir kynntu í dag markmið mitt sitt um nýtingu orku Þjórsár til atvinnuuppbyggingar í orkufrekum iðnaði við uppsprettu orkunnar. Þjórsársveitir eru verkefni sem Framkvæmdanefnd Þjórsársveita stendur fyrir en nefndin er skipuð af sveitarstjórnum sveitarfélaga sem eiga lönd að bökkum Þjórsár. Sveitarfélögin eru: Ásahreppur, Flóahreppur, Rangárþing ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.

Kynningarfundurinn var haldinn í Árnesi, félagsheimili Skeiða- og Gnúpverjahrepps, og mættu þar sveitarstjórnir Þjórsársveita, fulltrúar Landsvirkjunar, fulltrúar frá iðnaðarráðuneytinu og hluthafandi fyrirtæki og stofnanir auk fjölmiðla. Kynningarfundurinn fór fram með miklum ágætum undir styrkri stjórn Sigurðar Jónssonar, sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á fundinum flutti Örn Þórðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, ávarp frá Framkvæmdanefnd Þjórsársveita þar sem farið var yfir sjónarmið Framkvæmdanefndar og markmiðið um atvinnuuppbyggingu við uppsprettu ítrekað. Verkefnastjóri Þjórsársveita, Hrafn Þórðarson, kynnti kynningarefni sem unnið hefur verið fyrir Framkvæmdanefnd og mun vera grundvöllur þess kynningarstarfs sem framundan er.

Sérstakur gestur kynningarfundarins var Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sem fór yfir stöðu virkjanaundirbúnings á Þjórsársvæðinu. Í kynningu Friðriks kom fram að undirbúningur virkjanna væri í góðum gangi þótt ekki væri búið að taka lokaákvörðun um framkvæmd þeirra.  Fyrirhugaðar virkjanir á Þjórsársvæðinu væru með stærri framkvæmdum á Íslandi og eðlilegt að búa svo í haginn að framkvæmdir sættu ekki töfum vegna undirbúningsleysis Landsvirkjunar ef ákveðið verður að ráðast í þær. Fyrir stæði að hefja útboðsvinnu vegna fyrirhugaðra virkjana á næsta ári og í raun þegar búið að bjóða út vél- og rafbúnað virkjanna fjögurra. Stefnt er á orkan geti verið tilbúin til afhendingar á árunum 2012-2014. Í máli sínu vék forstjórinn þó að því að þessar tímasetningar væru háðar fjármögnun og sölu til orkunotanda.
 

Fundarstjóri var Sigurður Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

 

Örn Þórðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, flutti ávarp Framkvæmdanefndar