22. október 2008. Sveitarstjórnir funda um bæklingsgerð
Fulltrúar sveitarstjórna Þjórsársveita leggja á ráðin varðandi verkefnið Þjórsársveitir.
Á fundi á Leirubakka þann 22. október 2008 var verkefnið Þjórsársveitir - uppspretta orkunnar tekið til umfjöllunar af fulltrúum sveitarstjórna Þjórsársveitarfélaganna. Verkefnisstjóri kynnti lokadrög af fyrirhuguðum bækling og heimasíðu sem unnin hafa verið í tengslum við verkefnið. Var hljóðið almennt gott í fundarmönnum og mikill hugur í þeim að unnið sé áfram að markmiði Framkvæmdanefndar um atvinnuuppbyggingu í orkufrekum iðnaði.
Fundarmenn töldu mikilvægt að koma verkefninu sem fyrst fyrir augu almennings til að kynna svæðið fyrir utanaðkomandi fjárfestum jafnt sem til styrkingar á ímynd heimamanna á svæðinu í heild.