8. september 2008.
Þjórsársveitir - uppspretta orkunnar
 

Þjórsárbrúin er tákngervingur Þjórsársveita.
Verið velkominn

 

Framkvæmdanefnd vinnur hörðum höndum að markmiði sínu um atvinnuuppbyggingu í orkufrekum iðnaði. Sú vinna miðast þessa stundina við bæklingsgerð til að kynna kosti svæðisins í samráði við ráðgjafa verkefnisins. Hluti af því starfi er markaðssetning svæðisins.

Á samráðsfundi var tekin sú ákvörðun að nefna svæði sveitarfélaganna fjögurra Þjórsársveitir. Framkvæmdanefnd telur að nafngiftin muni auðvelda markaðssetningu svæðisins og undirstrikar bæði þann einhug sem ríkir á svæðinu auk þess að afmarka svæðið til undirstrikunar kröfugerðarinnar um að orka Þjórsár verði nýtt við uppsprettu sína. Þjórsá er sameiningartákn sveitarfélaganna og að sama skapi grundvöllur starfs Framkvæmdanefndar. Nafnið Þjórsársveitir þykir því vera afar heppilegt og von Framkvæmdanefndar að nafngiftin leggist vel í sveitunga sína.

Til samræmis var ákveðið að titill kynningarbæklings Framkvæmdanefndar yrði "Þjórsársveitir - uppspretta orkunnar". Framkvæmdanefnd mun sömuleiðis notast við nafnið "Framkvæmdanefnd Þjórsársveita".

Framkvæmdanefnd óskaði jafnframt eftir því að ráðgjafi verkefnisins tæki að sér verkefnastjórn næstkomandi mánuði. Í framhaldinu var Hrafni Þórðarsyni falin verkefnastjórn Þjórsársveita.