27. janúar 2009. Þjórsársveitir taka undir gagnrýni sveitarfélagsins Ölfuss Framkvæmdanefnd Þjórsársveita tekur undir gagnrýni sveitarfélagsins Ölfuss um neikvæð áhrif fyrirhugaðra orkuflutningsmannvirkja í sveitarfélaginu. Nefndin hefur áhyggjur af því að ekki standi til að nýta sunnlenska orku til atvinnusköpunar og byggðaþróunar á Suðurlandi í þeim áætlunum sem uppi eru um orkuframleiðslu og orkuflutning.
Framkvæmdanefnd Þjórsársveita hvetur til þess að hið fyrsta verði gert samkomulag milli aðila sem tryggi nýtingu sunnlenskrar orku á Suðurlandi í náinni framtíð. Nefndin telur svigrúm til þess að ná slíku samkomulagi og afar mikilvægt í ljósi alvarlegra aðstæðna í íslensku efnahagslífi.
Þjóðarhagur er í húfi að auðlindir landsins séu nýttar með hagkvæmum og skynsömum hætti.
Þjórsársveitir eru sveitarfélögin með lönd að bökkum Þjórsár og hafa það að markmiði að orka Þjórsár nýtist til atvinnuuppbyggingar í heimasveit. Í Framkvæmdanefnd sitja oddvitar og sveitarstjórar Þjórsársveitarfélaganna.